Haustið 2020 var RIFF, Alþjóðleg kvikmyndahátíð á Íslandi, haldin í sautjánda skiptið og sinnti ég starfi markaðsstjóra hátíðarinnar.
Starf markaðsstjóra fólst aðallega í samskiptum við samstarfs- og styrktaraðila ásamt vinnu við markaðsstörf hátíðarinnar ásamt frábæru teymi, almennri viðburðastjórnun og öðrum tilfallandi verkefnum. Þrátt fyrir hindranir covid-19 tókst hátíðin frábærlega, en faraldurinn bauð upp á að feta ýmsar ótroðnar slóðir og til dæmis halda bílabíó víðsvegar um landið ásamt því að sýna kvikmyndir á netinu, svo dæmi séu nefnd. Meira um RIFF má sjá hér
Yfirsýn
Skipulag
Að vinna undir álagi
Markaðsþekking
Samskipti við hagaðila
Samvinna við teymismeðlimi
2020
Ert þú með skemmtilegt verkefni í huga en vantar aðstoð með það, eða ertu með frábæra hugmynd en vantar hjálp við að taka hana lengra?
Hvort sem það er verkefna- eða viðburðastjórnun sem þig vantar aðstoð við þá er ég alltaf til í kaffibolla og ræða málin og skoða hvort við pössum ekki saman.
Ekki hika við að hafa samband. Ég hlakka til að heyra frá þér!